Um okkur

Element ehf. flytur inn krosslímt timbur frá austurríska framleiðandanum KLH Massivholz GmbH og forsmíðuð baðherbergi frá danska framleiðandanum Green Box.

Í gegnum verkefni okkar frá árinu 2015 með krosslímt timbur höfum við aflað okkur mikillar sérþekkingar og reynslu sem nýtist viðskiptavinum okkar. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa einnig margra ára reynslu úr byggingageiranum.

Element ehf. varð til í framhaldi af verkefninu Fosshótel við Jökulsárlón. Við mat á efnisvali burðarvirkja þessa rúmlega 100 herbergja hótels, var ákveðið að notast við krosslímt timbur frá austurríska framleiðandanum KLH. Í kjölfarið af þessu fyrsta verkefni forsvarsmanna fyrirtækisins, sem einnig var stærsta verkefnið á Íslandi á þeim tíma með krosslímt timbur, fengum við umboðið á Íslandi.

Árið 2022 komumst við í kynni við danska framleiðandann Green Box A/S sem framleiðir forsmíðuð baðherbergi. Green Box hóf framleiðslu sína árið 2014 og framleiðir um 4 þúsund baðherbergiseiningar á ársgrundvelli.

 

Þjónusta

Element ehf. býður krosslímt timbur frá austurríska framleiðandanum KLH Massivholz GmbH. Við bjóðum heildstæða þjónustu við ráðgjöf, hönnun burðarvirkja, teikningagerð, efnisöflun og uppsetningu burðarvirkja úr krosslímdu timbri.

Element býður forsmíðuð baðherbergi frá danska framleiðandanum Green Box A/S. Baðherbergin eru sniðin að óskum viðskiptavina og koma fullbúin á verkstað.

Við leggjum mikið upp úr heiðarlegum viðskiptum, fagmennsku og því að skila góðum verkum.

 

Forsvarsmenn

Eigendur fyrirtækisins eru:

Karl Sigfússon og Sverrir Steinn Ingimundarson.

Framkvæmdastjóri Element er Sverrir Steinn Ingimundarson, iðnaðartæknifræðingur. Sverrir hefur um 20 ára reynslu af sölu og verkefnastjórnun í byggingageiranum.

Karl er byggingaverkfræðingur með um 25 ára reynslu af stjórnun og skipulagningu verklegra framkvæmda. Karl rekur verkefna- og byggingastjórnunar fyrirtækið BEKA ehf sem hefur komið að mörgum verkefnum Element.

Ingvar Rafn Gunnarsson er byggingarverkfræðingur með 20 ára reynslu af hönnun burðarvirkja og verkefnastýringu. Ingvar er löggiltur burðarvirkjahönnuður og skrifar upp á teikningar útgefnar af Element hvort sem hönnunin er gerð innanhúss eða af erlendum samstarfsaðilum.

Birgir Hrafn Sæmundsson er byggingartæknifræðingur og húsasmíðameistari. Hann hefur 10 ára reynslu af verkefnastjórnun byggingaframkvæmda.

Element var stofnað árið 2016 af Karli Sigfússyni og Benedikt Inga Tómassyni.

Krosslímt timbur og forsmíðuð baðherbergi