Silfursmári 12, Kópavogi – skrifstofuhús úr krosslímdu timbri, drónamynd 1
Verkefni

Silfursmári 12

skrifstofuhús

Burðarvirkið er samverkandi kerfi þar sem krosslímt timbur og stálvirki er bundið saman með steypu. Bitar og súlur eru stál en kjarni, gólf, þök og stigar eru úr krosslímdu timbri. Haflengdir eru miklar sem gefur mikinn sveigjanleika varðandi ráðstöfun á rýmum. Arkitektúrinn er glæsilegur og sýnilegt yfirborð krosslímda timbursins er látið njóta sín í loftum, þökum og veggjum. Verkefnið hlaut Grænu skófluna í flokki nýbygginga fyrir heildstæða nálgun að sjálfbærni, gæðum og notagildi. Hönnun hússins tekur mið af Svansviðmiðum og lögð er áhersla á góða dagsbirtu, loftgæði og hljóðvist, auk sveigjanlegra rýma sem geta aðlagast breyttum þörfum notenda.

Nánari atriði

  • 46 tonn af stálvirki
  • Uppsetningartíminn var 8 vikur
  • Kolefnisfótspor byggingarinnar var 30% lægri en ef notast hefði verið við steypu
Umfang
3.500 fermetrar af krosslímdu timbri
Þjónusta Element
Burðarþolshönnun, efnisöflun og uppsetning
Uppsett
Uppsett ágúst-október 2024
Verkkaupi
Klasi ehf.
Arkitekt
Batteríið arkitektar

Myndir frá verkefninu

Fleiri verkefni

Fyrra verkefniNæsta verkefni