Verkefnið er 28 herbergja gistihús á miðhálendinu við Kerlingarfjöll. Veggir kjallara voru steyptir en þar ofan á kom KLT plata og svo tvær hæðir af krosslímdu timbri. Límtré og stál var notað til frekari styrkinga. Mikið af sýnilegu timbri er í veggjum og loftum/þaki.
- 2.600 fermetrar af einingum
- Burðarþolshönnun, efnisöflun og uppsetning
- Uppsett í september-október 2022
- Verkkaupi Kerlingarfjöll ehf.
- Arkitektar: Basalt arkitektar