This news item is only available in Icelandic.
10 ár · 10 dagar · 10 myndir Dagur 5 af 10: 2020
Árið 2020 fóru krosslímdar einingar frá Element í tíu verkefni, samtals um 17.400 m². Stærsta verkefni ársins var raðhúsabyggð Vistbyggðar við Urriðaholtsstræti 44–74 í Garðabæ, um 8.600 m². Önnur verkefni voru meðal annars viðbygging Fosshótels Stykkishólms, raðhús í Hagahverfi á Akureyri, aðstöðuhús siglingaklúbbsins Nökkva á Akureyri og einbýlishús í Mosfellsbæ.
Á myndunum:
Urriðaholtsstræti 44–74 – Garðabæ
Fosshótel Stykkishólmur, viðbygging
Kristjánshagi 15–27 – Akureyri
Nökkvi, Drottningarbraut 1 – Akureyri
Súluhöfði 51 – Mosfellsbæ
Laxatunga 61 – Mosfellsbæ




