This news item is only available in Icelandic.
10 ár · 10 dagar · 10 myndir Dagur 7 af 10: 2022
Árið 2022 fóru krosslímdar einingar frá Element í fimmtán verkefni, samtals um 26.400 m². Tvö verkefni stóðu upp úr: 19 raðhús Vistbyggðar við Kinnargötu 44–80 í Garðabæ og Highland Base, nýtt hótel í Kerlingarfjöllum. Önnur verkefni voru meðal annars fjölbýlishús við Rökkvatjörn 6 í Reykjavík, raðhús og einbýlishús á Akureyri og fjórði og fimmti áfangi frístundabyggðarinnar í Hálöndum við Akureyri.
Í mars var Element með bás á sýningunni Verk og vit.
Á myndunum:
Kinnargata 44–80 – Garðabæ
Highland Base – Kerlingarfjöllum
Verk og vit 2022




